Skip to content

Skilmálar

Skilmálar í vefverslun

Hérna geturðu lesið almenna skilmála okkar.

9 mánuðir ehf., hér eftir nefnt „9 mánuðir„.

Vefur er rekin af:
9 mánuðir ehf.
Kt. 500723 – 0170
Heimilisfang: Hlíðasmára 10 201 Kópavogur

Ef þú fræðast sérstaklega um persónuverndarstefnu okkar, geturðu smellt hér. Með því að samþykkja þessa skilmála staðfestirðu að þú hafir lesið þá og meðtekið efni þeirra.

Persónuvernd og vefkökur

Hjá okkur er öryggi í fyrirrúmi og leggjum við mikið upp úr því að tryggja okkar viðskiptavinum að persónuupplýsingar séu meðhöndlaðar með þeim hætti. Hægt er að nálgast persónuverndarstefnu okkar hér, þar sem einnig er hægt að nálgast vefkökustefnu okkar.

Skil og endurgreiðsla

Við gerum þá kröfu að allir notendur Netverslunar séu fjárráða einstaklingar. Þú samþykkir að þegar þú verslar við okkur að greiðslukortið sé á þínu nafni.

Endurgreiðsla er veitt í formi inneignar. Nema í því tilviki að um fæðingarfræðslu er að ræða og fæðing sé hafin/yfirstaðin, þá er námskeiðið endurgreitt.

Tilkynningar

9 mánuðir hefur leyfi til að senda þér tilkynningar með rafrænum hætti á það netfang og eða símanúmer sem notandi hefur gefið upp í tengslum við þjónustuna. 9 mánuðir reynir að tryggja að allar tilkynningar berist notanda fljótt og örugglega en ábyrgist þó ekki að tilkynningar komist rétt og tímanlega til skila. 9 mánuðir. ber enga ábyrgð á og er ekki skaðabótaskylt vegna þeirra tilkynninga sem 9 mánuðir. kann að senda þér, hvorki vegna innihalds né vegna þess að tilkynningar berast ekki á réttum tíma. Með því að samþykkja þessa skilmála veitir þú 9 mánuðum leyfi að senda þér tölvupóst í markaðslegum tilgangi.

Öryggisbrestir

Ef að þú verður var eða vör við óeðlilega notkun sem þú telur þig ekki hafa framkvæmt er það á þinni ábyrgð að láta okkur vita eða loka án tafar fyrir aðganginn og/eða kortið sem skráð er í okkar kerfum. 9 mánuðir áskilur sér þann rétt að loka fyrir aðganginn þinn eða aðra notendur ef grunur er um misnotkun eða ranga notkun af einhverju tagi kemur upp, að einhliða mati 9 mánuða. Ef engin notkun hefur átt sér stað í 12 mánuði höfum við þann rétt að loka aðganginum þínum án fyrirvara.

Öryggi á vefnum

Við leggjum okkur fram við að vernda persónulegar upplýsingar með því að nota þá SSL öryggisdulkóðun í öllum samskiptum milli netverslunar og viðskiptavinar.

Breytingar á skilmálum

Þú hefur aðgang að gildandi skilmálum á vef okkar. 9 mánuðir áskilur sér rétt til að breyta ákvæðum skilmála einhliða. Komi til breytinga á skilmálum sem eru þér til óhagræðis munu þær verða kynntar með minnst 30 daga fyrirvara með skilaboðum í gegnum tölvupóst á skráð netfang. Þú samþykkir framangreindar aðferðir við upplýsingagjöf til þín. Í tilkynningu um breytta skilmála skal vakin athygli á því í hverju breytingar eru fólgnar og réttar þíns til að segja upp þjónustunni. Við lítum svo á að þú hafir samþykkt breytingar ef þú notar netverslun okkar eftir að nýir skilmálar hafa verið kynntir og teknir í gildi. 9 mánuðir. áskilur sér rétt til að hafa samskipti við þig og aðra notendur í gegnum tölvupóst á skráð netfang.

Gildistími

Skilmálar þessir eru gefnir út af 9 mánuðum og gilda frá og með 1. janúar 2022 og til þess tíma er nýir skilmálar taka gildi.