Skip to content

Fæðingarfræðsla

Fæðingarundirbúningur fyrir verðandi foreldra.

Ljósmæður sem sinna fæðingarfræðslu 9 mánaða starfa við fæðingar ásamt því að sinna annarri fæðingarþjónustu eins og mæðravernd og heimaþjónustu. Þær eru: Jóhanna María Friðriksdóttir, Elín Inga Lárusdóttir, Valborg Bjarnadóttir og Svandís Edda.
Umsjón með námskeiðum 9 mánaða hefur ljósmóðirin Elín Arna Gunnarsdóttir.

Á námskeiðunum er lögð áhersla á:
  • Fæðinguna sjálfa, hvað er að gerast í líkamanum þegar fæðingin hefst. Lögð er áhersla á að konan þekki viðbrögð líkama síns þegar fæðingarhríðar hefjast og hvernig best er að vinna með líkamanum. Leggjum áherslu á öndunartækni, nudd, slökun sem og aðrar verkjameðferðir.

  • Efla sjálfsöryggi og sjálfshjálp verðandi foreldra, hvað þau geta sjálf gert til að þeim líði sem best í fæðingunni.

  • Umönnun nýfædda barnsins og fyrstu dagana í lífi þess.

Markmið með námskeiðinu er
  • Að verðandi foreldrar öðlist hagnýta þekkingu á fæðingunni og getið valið á milli ýmissa valkosta sem upp koma í fæðingu, t.d. mismunandi fæðingastellinga, verkjameðferða o.fl.

  • Að efla sjálfsöryggi og sjálfshjálp verðandi foreldra.

  • Að fræða foreldra um nýfædda barnið og fyrstu dagana í lífi þess.

Námskeiðin fara fram í notalegri setustofu í húsnæði okkar að Hlíðasmára 10, Kópavogi. Notalegt umhverfi, fámennur hópur og faglegir og reynslumiklir leiðbeinendur.  Hvert námskeið er eitt skipti, 3 – 3,5 klst í senn.

Skráning fer fram hér á heimasíðunni undir „Bóka tíma“ eða með því að senda póst á [email protected].  Gott er að skrá sig með góðum fyrirvara og við mælum með að koma í viku 32. eða síðar.
Vinsamlegast setjið bæði nöfnin við bókun, ef um er að ræða maka/fæðingarfélaga. 
Mikilvægt er að verðandi móðir og faðir/maki eða annar fæðingarfélagi mæti saman á námskeiðið. 

Verð kr. 18.990 fyrir parið.
Upplýsingar um greiðslufyrirkomulag er sent til þátttakenda í þeim mánuði sem námskeiðið er haldið.


NÆSTU NÁMSKEIÐ

Júlí
Mánudagur 27. júlí, kl. 18 – laust fyrir eitt par

Ágúst
Miðvikudagur 12. ágúst, kl. 18
Miðvikudagur 19. ágúst, kl. 18
Þriðjudagur 25. ágúst, kl. 18

September
Þriðjudagur 1. sept, kl. 18
Fimmtudagur 24. sept, kl. 18

Október
Þriðjudagur 6. okt, kl. 18
Mánudagur 19. okt, kl. 18

Nóvember
Miðvikudagur 18. nóv, kl. 18

Desember
Miðvikudagur 16. des, kl. 18

ATH! Ef fullbókað er á námskeið er hægt að biðja um að vera á biðlista.