Snemmsónar
Ómskoðun sem gerð er fyrir 12 vikna meðgöngu kallast snemmsónar / snemmómskoðun.
Tilgangur skoðunarinnar er að staðfesta þungun í legi og meta meðgöngulengd. Í skoðuninni er athugað hvort fóstrið sé á réttum stað (inni í leginu) og ef fleiri en eitt fóstur sjást er fjöldi fóstra talinn. Hjartsláttur fósturs metinn og meðgöngulengd áætluð með mælingu á stærð fósturs. Hjartsláttur er metinn sjónrænt en ekki mælt með að hlusta fósturhjartslátt fyrir 12. viku meðgöngu þar sem það getur valdið skaða á viðkvæmum vefjum fóstursins.*
Almennt er skoðað í gegnum kviðvegginn (rétt fyrir ofan lífbein) en ef þörf er á er hægt að skoða gegnum leggöng. Mælt er með að hafa fulla þvagblöðru til þess að myndgæðin verði sem ákjósanlegust. Þetta þýðir að kona sem kemur í skoðun eigi helst ekki að hafa þvaglát 2 klukkustundum fyrir ómskoðunina, og drekka 1-2 glös af einhverjum vökva.
Hjá 9 mánuðum er boðið upp á þessa skoðun frá 7 vikum til viku 13. Barnshafandi konum er velkomið að koma aftur í snemmsónar á meðgöngunni og geta þá bókað sig í Snemmsónar – auka heimsókn (ódýrari tími).
Ljósmæðurnar Signý Dóra Harðardóttir, Ásthildur Gestsdóttir og Sigrún Huld sjá um snemmómskoðanir hjá 9 mánuðum. Þær hafa sérhæfingu í ómskoðunum á meðgöngu og starfa með leyfi Landlæknis við snemmómskoðanir.
Hægt er að bóka tíma hér efst á síðunni, velja Snemmsónar.
Einnig er hægt að senda tölvupóst með fyrirspurnum á:
[email protected]
Það getur komið fyrir að við 7 vikna meðgöngu sjáist ekki fóstur né hjartsláttur. Þá getur verið að konan sé mögulega ekki þunguð, að meðgangan sé styttri á veg komin en áætlað var eða annað. Í þessum tilfellum verður boðið upp á nýja skoðun 2 vikum seinna.
*Nákvæm meðgöngulengd er metin í 12 vikna ómskoðun sem fer fram á Fósturgreiningardeild Landspítalans (fyrir Höfuðborgarsvæðið).
Snemmsónar - Auka heimsókn
Þessi skoðun er ætluð þeim sem hafa komið áður í snemmsónar hjá 9 mánuðum á sömu meðgöngu og óska eftir að koma aftur.
Athugið: Eingöngu fyrir þau sem hafa áður komið í snemmsónar hjá 9 mánuðum á núverandi meðgöngu. Ef þú ert að koma í fyrsta sinn skaltu velja hefðbundinn snemmsónar.
Í boði frá viku 7 til viku 13.
Hægt er að bóka tíma hér efst á síðunni, velja Snemmsónar – auka heimsókn.