Skip to content

Fæðingarfræðsla

Fæðingarundirbúningur fyrir verðandi foreldra.

Umsjón með námskeiðum 9 mánaða hefur ljósmóðirin Elín Arna Gunnarsdóttir.

Ljósmæður sem sinna fæðingarfræðslu 9 mánaða starfa við fæðingar ásamt því að sinna annarri fæðingarþjónustu eins og mæðravernd og heimaþjónustu. Þær eru: Heiðdís Dögg Sigurbjörnsdóttir, Jóhanna María Friðriksdóttir og Elín Inga Lárusdóttir.

Á námskeiðunum er lögð áhersla á:
  • Fæðinguna sjálfa, hvað er að gerast í líkamanum þegar fæðingin hefst. Lögð er áhersla á að konan þekki viðbrögð líkama síns þegar fæðingarhríðar hefjast og hvernig best er að vinna með líkamanum. Leggjum áherslu á öndunartækni, nudd, slökun sem og aðrar verkjameðferðir.

  • Efla sjálfsöryggi og sjálfshjálp verðandi foreldra, hvað þau geta sjálf gert til að þeim líði sem best í fæðingunni.

  • Umönnun nýfædda barnsins og fyrstu dagana í lífi þess.

Markmið með námskeiðinu er
  • Að verðandi foreldrar öðlist hagnýta þekkingu á fæðingunni og getið valið á milli ýmissa valkosta sem upp koma í fæðingu, t.d. mismunandi fæðingastellinga, verkjameðferða o.fl.

  • Að efla sjálfsöryggi og sjálfshjálp verðandi foreldra.

  • Að fræða foreldra um nýfædda barnið og fyrstu dagana í lífi þess.

Námskeiðin fara fram í notalegri setustofu í húsnæði okkar að Hlíðasmára 10, Kópavogi. Notalegt umhverfi, fámennur hópur og faglegir og reynslumiklir leiðbeinendur.  Hvert námskeið er eitt skipti, 3 – 3,5 klst í senn.

Skráning fer fram hér á heimasíðunni undir „Bóka tíma“ eða með því að senda póst á info@9manudir.is.  Gott er að skrá sig með góðum fyrirvara og við mælum með að koma í viku 32. eða síðar.
Vinsamlegast setjið bæði nöfnin við bókun, ef um er að ræða maka/fæðingarfélaga. Mikilvægt er að verðandi móðir og faðir/maki eða annar fæðingarfélagi mæti saman á námskeiðið. 

Verð kr. 16.000 fyrir parið.
Upplýsingar um greiðslufyrirkomulag er sent til þátttakenda í þeim mánuði sem námskeiðið er haldið.


NÆSTU NÁMSKEIÐ

Maí
Þriðjudagur 14. maí kl. 18 – fullbókað
Þriðjudagur 21. maí kl. 18 – fullbókað
Miðvikudagur 22. maí kl. 17 – fullbókað
Þriðjudagur 28. maí kl. 18 – fullbókað

Júní
Þriðjudagur 11. júní kl. 18 – eitt pláss laust
Fimmtudagur 13. júní kl. 18 – fullbókað
Fimmtudagur 20. júní kl. 17

Júlí
Miðvikudagur 17. júlí kl. 18
Þriðjudagur 30. júlí kl. 18

Ágúst
Fimmtudagur 1. ágúst kl. 18
Þriðjudagur 20. ágúst kl. 17

ATH! Ef fullbókað er á námskeið er hægt að biðja um að vera á biðlista.