Nýja sónartækið okkar byggir á HD live tækni og býður upp á myndir og myndbönd í 5D, það nýjasta og þróaðasta í sónarmyndum í dag.

Afburða upplausn og sjálfvirkni gefur einstaklega raunverulegar og skarpar myndir. Við tökum nú myndir í 2D, 3D, 4D og 5D (HD live). Gæði myndanna fara þó eftir ýmsum þáttum, eins og legvatnsmagni, legu barnsins og skyggni.
Allt byggist þetta á sömu tækni: hljóðbylgjum sem gefa þrívíddarmynd af ófæddu barninu. 3D gefur stakar myndir, 4D stuttar hreyfimyndir í rauntíma og í 5D hámarkar sjálfvirknin gæði og útkomu myndanna.
Tækið er af gerðinni GE Voluson E8, framleitt af General Electric: sónartæki í hæsta gæðaflokki sem uppfyllir öll öryggisskilyrði sem slíkt tæki þarf að uppfylla. Voluson tækin eru leiðandi í heiminum á sviði fósturrannsókna.