Ómskoðun sem gerð er fyrir 12 vikna meðgöngu kallast snemmsónar / snemmómskoðun.
Tilgangur skoðunarinnar er meðal annars að athuga hvort fóstrið sé á réttum stað (inni í leginu), fjöldi fóstra er talinn, hjartsláttur fósturs metinn og meðgöngulengd áætluð*.
Ljósmæðurnar Signý Dóra Harðardóttir, Sigrún Ingvarsdóttir og Ásthildur Gestsdóttir sjá um snemmómskoðanir hjá 9 mánuðum. Þær eru með sérhæfingu í ómskoðunum á kvenlíffærum og á meðgöngu (ultrasound in gynaecology and obstetrics) og með leyfi Landlæknis fyrir snemmsónar-skoðanir.
Hjá 9 mánuðum er boðið upp á þessa skoðun frá 7 vikum til viku 12. Skoðað er í gegnum kviðvegginn (rétt fyrir ofan lífbein). Mælt er með að hafa fulla þvagblöðru til þess að myndgæðin verði sem ákjósanlegust. Þetta þýðir að kona sem kemur í skoðun eigi helst ekki að hafa þvaglát 2 klukkustundum fyrir ómskoðunina, og drekka 1-2 glös af einhverjum vökva.
Hægt er að bóka tíma hér efst á síðunni, velja Snemmsónar.
Einnig er hægt að senda þeim póst með fyrirspurnum á:
signydora@9manudir.is og sigruningvars@9manudir.is
Verð kr. 14.500.- kvöld og helgartímar kr. 16.000.-
Það getur komið fyrir að við 7 vikna meðgöngu sjáist ekki fóstur né hjartsláttur. Þá getur verið að konan sé mögulega ekki þunguð, að meðgangan sé styttri á veg komin en áætlað var eða annað. Í þessum tilfellum verður boðið upp á nýja skoðun 2 vikum seinna.
*Nákvæm meðgöngulengd er metin í 12 vikna ómskoðun sem fer fram á Fósturgreiningardeild Landspítalans (fyrir Höfuðborgarsvæðið).