|
|
|
|
|
|
|
Nuddnámskeið fyrir maka verðandi móður
|
|
|
|
|
|
 Námskeiðið er hugsað fyrir verðandi feður (maka verðandi móður) eða fæðingarfélaga til að þeir/þær geti tekið virkan þátt í meðgöngu, fæðingu og ferlinu eftir fæðingu. Verðandi foreldrar koma saman eða verðandi móðir með fæðingarfélaga.
Á námskeiðinu sem er ein kvöldstund verður verkleg kennsla og æfingar. Kennt verður á hvaða hátt er gagnlegt að nudda ýmis álagssvæði á meðgöngu og/eða líkamssvæði þar sem konan finnur til þreytu og/eða verkja. Einnig verður farið yfir nuddtækni til notkunar í fæðingunni sjálfri og slökunarnudd eftir fæðingu t.d. þegar konan er þreytt í öxlum eftir brjóstagjöf. Námskeiðið er byggt upp á sem hagnýtastan hátt og nuddtæknin er auðveld í framkvæmd. Rannsóknir sýna að ávinningur af nuddi á meðgöngu er margvíslegur þ.á.m. minni verkir verðandi mæðra, minni líkur á fæðingarþunglyndi beggja aðila, minni líkur á fyrirburafæðingum og bætt samband milli aðila. Þá verður lítllega rætt um næringarþætti sem eru mikilvægir á meðgöngu og við brjóstagjöf og minnst á ýmis önnur hagnýt ráð.
Námskeiðin haldin annan og fjórða hvern þriðjudag í mánuði.* *með fyrirvara um næga þátttöku.
Gott er að taka með sér auka púða og etv. teppi og mælt er með að mæta í þægilegum klæðnaði sem ekki hamlar hreyfingum. Eins að koma með þægilega skó eða ullarsokka. Þátttaka á námskeiðinu kostar 7000 kr. fyrir parið. Boðið er uppá létta hressingu í hléi.
Kennari er Fríða Nicholls Hauksdóttir, heilsunuddari, næringarþerapisti og osteópati. sími: 8462392 netfang: frida@9manudir.is Við pantanir vinsamlega takið fram meðgöngulengd og hvaða dagsetning hentar ykkur best. |
|
|
|
|
9 mánuðir - Heilsumiðstöð | Sími 533 3433 | Hlíðasmára 2 | 201 Kópavogur | info@9manudir.is |  |
|